Grunnskólinn á Suðureyri - Fréttir
Við erum komin með nýja heimasíðu. Slóðin á hana er https://grunnskolar.isafjardarbaer.is
Þessi vika hjá okkur var fjölbreytt. Nemendur á mið- og yngsta stigi tóku þátt í litlu íþróttahátíðinni sem fór fram á Þingeyri að þessu sinni.  Þessi hátíð er samvinnuverkefni skólanna á Flateyri, Þingeyri, Suðureyri og Súðavík. Það var ekki annað að heyra en allir voru mjög sáttir.
Á fimmtudaginn fóru nemendur í vorferðir. Miðstig fór á Ísafjörð. Þau kíktu á Byggðarsafnið, prufuðu ærslabelginn og kíktu á púttvöllinn hjá Hlíf. Einnig röltu þau um bæinn og skoðuðu gömul hús.
Yngsta stig fór í sína árlegu ferð með leikskólanum en þó fóru til Flateyrar að þessu sinni. Þar nutu þau verðurblíðunnar með því að fara upp á varnargarðinn og leika sér á leiksvæðinu í kringum skólann.
Unglingarnir okkar komu aftur heim eftir velheppnað skólaferalag til Króatíu.
Njótið helgarinnar
Árshátíð Grunnskólans verður fimmtudaginn 26.mars. Sýningar verða tvær eins og vanalega. Fyrri sýning verður kl: 17:00 og seinni sýning kl:20:00. Miðaverð er 2000 kr. fyrir 16.ára og eldri. Frítt fyrir 15.ára og yngri.
Hlökkum til að sjá ykkur
Á þriðjudaginn var mið- og unglingastigi boðið upp á fyrirlestur um fullkomnuáráttu, kvíða, sjálfsmynd og leiðir til að styrkja sjálfstraust og vellíðan.  Það var Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson, höfundur bókarinnar, Ég er ekki fullkominn, sem var með þennan fyrirlestur. Hann gaf einnig skólanum tvær bækur.  Fyrirlesturinn var í boði Svæðisstöðvar Íþróttahéraðanna.
Í dag fór miðstig á Ísafjörð og tók þátt í Sólmyrkvaleikunum en það er hluti að Barnamenningarhátíðinni Púkanum. Þar voru þau m.a. að gera skuggaleikhús, fara í tónlistarsmiðju og vísindasmiðju með Stjörnu-Sævari.
Vetrarfrí er á fimmtudag og föstudag. Mánudaginn 2. mars er starfsdagur. Skólahald hefst aftur þriðjudaginn 3.mars samkvæmt stundarskrá.
Njótið í vetrarfríinu.
Það er allt komið á fullt hjá okkur á nýju ári. Við fengum heimsókn frá elstu nemendum leikskólans en markmið með því er að nemendur þekki skólann og starfsfólk hans þegar það byrjar í 1. bekk að hausti. Það voru allir mjög spenntir og tóku virkan þátt í kennslustundinni.
Í næstu vikur er bóndadagur en þá höfum við boðið upp á þorrasmakk og hvetjum nemendur til að koma í lopapeysu í skólann  þann dag.
Njótið helgarinnar.
Í dag voru jóla íþróttaleikar hjá okkur. Nemendum var skipt í fjögur lið og keppt var í fótbolta, körfubolta, skotbolta, reipitogi og dýnuleik. Það var unglingastig sem skipulagði þennan skemmtilega dag. Allir tóku þátt og skemmtu sér vel.
Á morgun eru litlu jólin hjá okkur en þá mæta nemendur kl:9:00 og við verðum til 11:30.
Skólahald hefst aftur á nýju ári þriðjudaginn  6. janúar kl:10:00.
Vil minna ykkur á sýninguna í Safnahúsinu á Ísafirði, Jólin koma.
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og vonum að þig njótið jólahátíðarinnar með ykkar nánustu.
Þökkum fyrir samstarfið á árinu sem er að líða.
Starfsfólk Grunnskólans á Suðureyri
Jólin koma
Nemendur Grunnskólanna á Flateyri, Þingeyri og Suðureyri eru með jólaýningu í Safnahúsinu á Ísafirði. Við hvetjum alla foreldra og aðra aðstandendur að fara með börnum sínum og njóta sýningarinnar. Hún stendur yfir til 5. janúar.
Þessa fyrstu viku desember mánaðar höfum við haft nóg fyrir stafni. Við vorum með opið hús á mánudaginn en þá voru foreldrar velkomnir að kíkja á börn sín í kennslustund.  Unglingar skreyttu jólatréð og sína stofu. Einnig hefur miðstigið verið að skreyta hjá sér. Föndurdagar voru á þriðjudag og miðvikudag en þá var nemendum skipt í hópa og gerðu ólík verkefni. Meðal verkefna voru að mála krukkur, gera pottaleppa og að búa til jólaskaut. Einnig er jólakortagerð að hefjast.
Eigið góða helgi.
Á mánudag buðum við foreldrum í heimsókn í tilefni degi íslenskrar tungu sem var 16. nóvember. Nemendur voru með upplestur og lásu ljóð eða sögur fyrir foreldra sína. Einnig var rætt um uppáhalds bókina sína.  Boðið var upp á kaffi og köku en það voru nemendur á unglingastigi sem bökuðu skúffuköku fyrir gesti.
Við erum byrjuð á nýju verkefni sem tengist samvinnuverkefni okkar. Nemendur ætla að fræðast um jólin í ólíkum löndum.
Síðasta vika nóvember mánaðar er framundan og allir farnir að vera spenntir fyrir þeim tíma sem framundan er.
Með von um að þið eigið góða helgi.
Á miðvikudaginn var bleikur dagur hjá okkur eins og mörgum öðrum. Unglingastig bakaði möffins með bleiku kremi fyrir allan skólann. Smiðjuskipti voru þessa viku hjá miðstigi en þau voru að byrja í smíðum og tæknilist.
Í næstu viku eru smiðjuskipti hjá yngsta stigi. Þau byrja þá í Heimilisfræði og myndmennt.
Halloween er í næstu viku og þá verður nóg um að vera. Einnig erum við að fá Skáld í skólum í heimsókn en að þessu sinni ætla þau að hitta yngsta stig.
Megi helgin vera ykkkur góð.