VALMYND ×

Gleðileg jól

Við héldum litlu jólin hátíðleg í dag. Lesnar voru sögur, spilað og nemendur skiptust á pökkum og jólakortum. Við fengum hressa jólasveina í heimsókn og sungum og dönsuðum í kring um jólatré. Myndir frá hátíðinni má skoða hér.

 

Starfsfólk skólans óskar nemendum, aðstandendum og bæjarbúum öllum gleðilegra hátíðar og farsældar á nýju ári. Við þökkum kærlega fyrir samstarfið á árinu og hlökkum til að vinna með ykkur á því næsta. 

 

Við sjáumst öll hress og endurnærð 4. janúar kl 08:00