VALMYND ×

Íþróttaskóli HSV á Suðureyri

Íþróttaskóli HSV mun hefjast miðvikudaginn 3.febrúar. Íþróttaskólinn er samvinnuverkefni HSV, aðildafélaga HSV og Ísafjarðarbæjar.  Íþróttaskólinn er ætlaður börnum í 1-4. bekk í grunnskólum Ísafjarðarbæjar og geta öll börn á þessum aldri skráð sig í skólann og tekið þátt.  Íþróttaskóli HSV leggur áherslu á grunnþjálfun barna ásamt því að þau fái þjálfun í flestum þeim íþróttagreinum sem í boði eru á eldri stigum aðildarfélaga HSV.  Á vormisseri er skólanum skipt upp í þrjá hluta þ.e. grunnþjálfun, boltaskóla og skíðaæfingar. 

Grunnþjálfun: Í grunnþjálfun er áhersla lögð á hreyfingu og hreyfiþroska barna.  Fjölbreyttar æfingar verða í boði, farið í leiki, þrautir, fimleika, hopp, hlaup, köst, aðrar greinar kynntar og margt fleira.  Grunnþjálfun er í boði einu sinni í viku. Þjálfari er Þorgerður Karlsdóttir.

Boltaskóli:  Í boltaskólanum verður boltagreinum skipt upp í tímabil og þjálfuð ein grein í einu.  Boltagreinarnar í skólanum eru knattspyrna, körfuknattleikur og handknattleikur.   Geta börnin því fengið að kynnast öllum þessum greinum og æft hverja grein yfir veturinn.  Boltaskóli er í boði einu sinni í viku og verðum við í körfubolta fyrsta tímabil vetrarins. Æfingarnar eru undir stjórn þjálfara hvers boltafélags.

 

Dagar

Íþrótt

Tímabil 1

3.feb-2.mars

Körfubolti

Tímabil 2

9.mars-13.apríl

Handbolti

Tímabil 3

20.apríl-25.maí

Fótbolti

 

 

Skráningarleiðbeiningar og frekari upplýsingar á www.hsv.is