VALMYND ×

Fréttir úr skólastarfinu

Nemendur vinna með texta í tilefni dags íslenskrar tungu
Nemendur vinna með texta í tilefni dags íslenskrar tungu
1 af 6

Vel var mætt á fund með læsisráðgjöfum sem komu í þar síðustu viku og héldu fund með foreldrum. Fundurinn er liður í þjóðarátaki um læsi. Í síðustu viku áttu kennarar sameiginlegan starfsdag á Flateyri með Önfirðingum og Þingeyringum. Í gær var svo dagur íslenskrar tungu og vinna nemendur í tilefni af því ýmis íslensku verkefni.

Unglingarnir okkar eru að byrja að vinna skólablaðið og hvetjum við fólk til að taka vel á móti þeim næstu vikurnar.