VALMYND ×

Blár dagur föstudaginn 1. apríl

Klæðumst bláu á BLÁA DAGINN föstudaginn 1. apríl

Alþjóðlegur dagur einhverfunnar er á næsta leiti og föstudaginn 1.apríl næstkomandi hvetjum við alla til að klæðast bláu og vekja þannig athygli á málefnum einhverfra barna en blái liturinn hefur fest sig í sessi sem litur einhverfunnar um heim allan. Líkt og undanfarin ár er það BLÁR APRÍL Styrktarfélag barna með einhverfu, sem stendur fyrir deginum.

Markmið bláa dagsins er að vekja athygli á einhverfu og fá landsmenn alla til að sýna einhverfum stuðning sinn. Með aukinni vitund og þekkingu á einhverfu byggjum við upp samfélag sem er betur í stakk búið til að skilja þarfir einhverfra og virða framlag þeirra til samfélagsins. 

Síðustu ár hafa flestir skólar landsins og fjölmörg fyrirtæki og stofnanir tekið þátt í bláa deginum með því að hafa bláa litinn í fyrirrúmi. Margir hafa brugðið á það ráð að setja myndir á instagram og facebook og merkja þær með myllumerkinu #blarapril sem hefur gætt daginn skemmtilegum blæ og hjálpað til við aðbreiða út þennan jákvæða boðskap.

Við hlökkum til að sjá ykkur öll í bláu föstudaginn 1. apríl. Stöndum saman og fögnum fjölbreytileikanum. Því lífið er blátt á mismunandi hátt! #blarapril

Endilega fylgist með á facebook síðu styrktarfélagsins: http://facebook.com/einhverfa