Á morgun
Ágætu nemendur og foreldrar
Nú eru skrýtnir tíma og við höfum ekki áður lent í því að þurfa að skipuleggja nám nemenda án þess að mega hitta þá til að leiðbeina um einstök atriði en þetta er staðan sem við verðum að vinna með núna.
Á morgun mun starfsfólk skólans ,,hittast" og gera áætlanir um hvernig er hægt að hafa hlutina næstu tvær vikur á meðan á hertu samkomubanni stendur. Nemendur eiga því ekki að koma í skólann á morgun.
Það þarf að finna út hvaða gögnum þarf að koma á hvern nemendahóp og hvernig er best að gera það. Einnig hvernig kennarar geta verið í sambandi við nemendur. Þetta er einfaldast hjá unglingunum þar sem þar voru allir búnir að setja upp zoom-fjarfundarappið og eru með ipadana heima en aðeins flóknara hjá öðrum nemendahópum en við munum finna einhverjar lausnir á því að vera í sambandi við alla.
Lögð verður áhersla á halda uppi námi með einhverjum hætti hjá öllum aldurshópum meðan á þessum takmörkunum stendur. Frekari upplýsingar verða sendar út seinni partinn á morgun.
Það geta allir verið duglegir að lesa og hreyfa sig og það er mjög góð þjálfun bæði fyrir huga og líkama.
Kveðja
Starfsfólk grunnskólans.