Dagur læsis
Í tilefni af degi læsis sem var föstudaginn 7.september höfum við verið með auka áherslu á lestur þessa síðustu daga. Nemendur hafa farið í fyrirtæki og á leikskólann og lesið áheyrendur. Það er mjög mikilvægt atriði í því að vanda lestur að hafa fjölbreyttan áheyrendahóp. Við erum líka svo heppin að hér eru nemendur sem tala ýmis tungumál og nú notuðum við tækifærið og flestir nemendur lásu á sínu móðurmáli.