Flateyrarleikarnir
Í dag fóru nemendur í 1. - 7. bekk til Flateyrar og tóku þátt í skemmtilegum leik. Nemendur frá Þingeyri og Súðavík mættu einnig. Í ár var ákveðiði að nefna leikana Flateyrarleikana. Nemendum var skipt í hópa og þurftu þeir síðan að leysa þrautir út um allan bæ. Má nefna taka mynd af krumma, mynda Flateyri, leysa þrautir og gefa skólastjóranum á Flateyri haustvönd. Hægt var að fá stig fyrir hverja þraut og einnig var hægt að ná í bónusstig m.a. að spá fyrir heimamanni, gera góðverk og finna skurðgröfu. Þetta gekk frábærlega og allir kátir og hressir. Í lokinn var boðið upp á grillaðar pylsur og ís.