Fréttir vikunnar 22.-26.febrúar 2021
Í þessari viku fóru fram foreldraviðtöl þar sem nemendur sýndu foreldrum sínum verkefnin sín. Við lögðum áherslu á að nemendur veldu eitthvað sem þeir væru stoltir af og ræddu líka um það sem þeim finnst erfitt ef um eitthvað slíkt væri að ræða. Viðtölin fóru fram á zoom þar sem nemendur buðu foreldrum sínum á fundi og deildu með þeim efni af ipödunum sínum. Tæknileg vandamál komu því miður upp í sumum viðtölum en þau er hægt að leysa þar sem nú er búið að aflétta takmörkunum á heimsóknum í skólann og því hægt að fá foreldra í skólann til að skoða verkefnin með kökkunum. Þeir fundir verða boðaðir í næstu viku.
Okkur langar að vera fær um að leyfa nemendum að kynnast tækninni og því sem hún býður upp á því þar liggur framtíðin. Við fjárfestum nýlega í þrívíddardóti sem við bindum vonir við opni nýja möguleika í kennslu, en fyrst þurfum við auðvitað að gefa okkur smá tíma til að læra að nota þetta. Á þessum hlekk má sjá starfsmann í fyrstu tilraun. https://www.youtube.com/watch?v=CAyDxrImB64
Hafið það gott um helgina
Kveðja
Starfsfólkið í skólanum.