Síðasta vikan
Nú er síðustu heilu vikunni í skólanum lokið. hefð hefur skapast fyrir því að geyma mörg þeirra verkefna sem fela í sér útiveru til þessrar síðustu daga í von um betra verður og þannig hefur það einnig verið núna. Nemendur hafa hjólað á ísafjörð, út í Staðardal, gróðursett plöntur, róið á kajak og margt fleira skemmtilegt þessa viku. Síðasti heili skóladagurinn á þessu skólaári er svo á mánudaginn. Þá gerum við ráð fyrir að fara í ratleik og í sund með nemendur og enda svo í pylsugrilli í hádeginu. Skólaslit verða svo á þriðjudaginn. Nemendur 1.-7. bekkjar eiga að koma klukkan 11:00 og nemendur unglingastigs kklukkan 17:30. Það væri gaman ef sem flestir foreldrar gætu mett með börnum sínum á skólaslitin.