Hádegismatur og nesti
Hádegismatur
Boðið er upp á mat í hádeginu alla virka daga frá 24. ágúst til 30. maí að undanskildum frídögum nemenda. Maturinn er eldaður í leikskólanum fyrir leikskóla og grunnskólanemendur. Foreldrar geta valið hversu margar máltíðir á viku þeir kaupa. Verð fyrir staka máltíð er 490 kr. Boðið er upp á mánaðaráskrift og einnig verður hægt að kaupa alla önnina í einu. Ísafjarðarbær sendir rafrænt reikninga og greitt er í heimabanka.
Nánari upplýsingar um fyrirkomulag veitir leikskólastjóri Svava Rán Valgeirsdóttir í síma 450-8290.
Nesti
Öll viljum við kenna börnunum hollar og góðar matarvenjur og því er rétt að huga að því hvað flokkast sem hollt nesti. Á heimasíðu landlæknisembættisins www.landlaeknir.is er að finna upplýsingar um hollt og gott nesti fyrir börn. Þar kemur fram að fjölbreytni í nestisvali og magn skiptir máli, sætmeti er ekki æskilegt í nesti. Morgunmaturinn er mikilvægasta máltíð dagsins og börn sem nærast ekki vel að morgni dags skortir oft úthald og einbeitingu í amstri skóladagsins. Ef barn borðar haldgóðan morgunmat áður en það fer að heiman, þá ætti í flestum tilvikum að vera nóg að senda barnið með ávöxt/grænmeti, jógúrt eða hálfa samloku í skólann.
Hugmyndir að góðu nesti: Banani, epli, mandarína, appelsína, pera, gulrætur, agúrka og tómatar henta vel í nestisboxið. Gott gæti jafnvel verið að sneiða ávextina eða grænmetið niður. Mjólkurvörur ýmis konar geta hentað sem nesti en athugið vel innihald því margar mjólkurafurðir innihalda mikinn sykur s.s. engjaþykkni, skólajógurt o.fl.