Fréttir vikunnar 3.-7. desember 2018
Þessi vika hefur gengið vel fyrir sig, rétt eins og allar aðrar það sem af er hausti. Snjórinn hefur verið endalaus uppspretta leikja og búið er að gera mikil mannvirki á skólalóðinni. Skólaráð fundaði í vikunni og í kjölfarið verða ábendingar sendar til tæknideildar Ísafjarðarbæjar og eftir áramót verður væntanlega gerð skoðanakönnun um vilja foreldra í tengslum við tómstundastarf. Við höfum verið með danskan sendikennara í heimsókn og tækifærið hefur meðal annars verið nýtt til að æfa danska framburðinn, skoða hvað við kunnum mörg tungumál þegar við leggjum öll saman og læra lög á dönsku eins og sjá má á þessum hlekk hér https://www.youtube.com/watch?v=4VFyhPeAxsw . Að öðru leyti litast viðfangsefnin þessa dagana nokkuð af jólaundirbúningi. Í ritun eru nemendur til dæmis að æfa sig að beygja samsett nöfn rétt meðan þeir skrifa á jólakort til samnemenda sinna. 5. og 6. bekkur notuðu microbit-tölvurnar til að forrita skemmtilega jólakveðju og festu hana svo á spjald í smíðatíma. Í næstu viku verður hefðbundin dagskrá hjá okkur en í þeirri þar-næstu verðum við með jólaþema sem lýkur með litlu jólunum þann 20.des.