Fréttir
Samstarf gunnskóla og Menntaskólans á Ísafirði
Miðvikudaginn 9. mars s.l hittust skólastjórnendur grunnskóla á norðanverðum Vestfjörðum og Menntaskólans á Ísafirði á fundi. Umræðuefnið var efling samstarfs milli skólastiganna tveggja. Mikill hugur er í skólastjórnendum um að auka samstarf milli skólastiganna, bæði hvað varðar starfsfólk og nemendur. Næsti fundur skólastjórnenda verður haldinn í Grunnskólanum í Bolungarvík í byrjun maí og þar verða línurnar fyrir formlegra frekarar samtarf lagðar.
Búningadagur!
Þar sem Öskudagur "féll niður" í þarsíðustu viku ætlum við að blása til búningadags í skólanum á morgun, miðvikudag.
Skólinn lokar í dag kl 12:30
Vegna slæmrar veðurspár mun skólinn loka eftir hádegismatinn sem er kl 12:30 í síðasta lagi. Allir nemendur þurfa að vera sóttir.
Skólahald fellur niður
Skólahald fellur niður á morgun vegna veðurs. Mjög slæm veðurspá er nú fyrir morgundaginn, miðvikudaginn 23. febrúar og er komin appelsínugul veðurviðvörun frá morgni fram til miðnættis. Því hefur verið ákveðið, í samstarfi við sviðstjóra að fella niður allt skólahald á morgun.
Frábær skíðadagur
Skíðaferðin okkar heppnaðist stórkostlega vel. Fengum gott veður og allir höfðu gaman hvort sem var á skíðum, bretti eða snjóþotu. Fengum okkur heitt kakó og nesti eftir klukkustund í brekkunum og drifum okkur svo aftur í brekkurnar. Þegar kom að heimför var hreinleg erfitt að koma öllum upp í rútu því fjörið var svo mikið. Strax er búið að óska eftir næstu skíðaferð:)
Skíðaferð
Við ætlum að fara í skíðaferð til Ísafjarðar á föstudaginn n.k. Mæting í skólann kl 8 eftir stundatöflu en rútan fer ca 8:40. Muna að taka gott nesti með og hlý föt. Skíðaleigan verður opin og fáum við 20% afslátt af verðinu https://www.dalirnir.is/wp-content/uploads/2022/01/Ski%CC%81dasvaedi-2022.pdf. Reiknum með að koma til baka rétt upp úr kl 11 og þá verður hádegismaturinn fyrir þá sem eru í mataráskrift. Nemendur fara heim að þessu loknu.
Lestrarátak
inniskór í óskilum
Snjóhús á Suðureyri
Einn nemandi hér í grunnskólanum á Suðureyri skrifaði frétt inn á skolafrettir.is um snjóhús á skólalóðinni. https://skolafrettir.is/adsend-frett-snjohus-a-sudureyri/
Mjög gaman að lesa frétt frá Suðureyri inni á þessum skemmtilega vef sem er opinn öllum.