Fréttir
Kynning á ferðalagi um Suðurströndina
Sæl öllsömul
Hér koma nokkrar myndir frá frábærum fyrirlestrum sem nemendur á miðstigi héldu fyrir foreldra og aðstandendur. Þrátt fyrir mikinn spenning og stress tímann á undan þá stóðu þau sig stórkostlega og allir skemmtu sér vel. Þar með lauk hugaferðalagi krakkana um Ísland og nú tekur við að læra um Víkinga og sögu Íslands.
Ég vil sérstaklega þakka þeim foreldrum sem sáu sér fært að mæta og mun senda glærurnar á alla foreldra á miðstigi til að nemendur geti sýnt ykkur hugmynd sína að ferðalagi um Suðurlandið fyrir ykkur sem komust því miður ekki.
Kær kveðja, Sædís
Þorrablót
Föstudaginn 2. febrúar ætlum við að halda Þorrablót í Félagsheimilinu. Húsið opnar klukkan 18:30 og borðhald hefst klukkan 19:00. Gestir koma með sinn eigin mat en kaffi og konfekt verða í boði að borðhaldi loknu. Vinsamlegast athugið að börn eru á ábyrgð forsjáraðila.
Aðgangseyrir er 500kr.
það er ennþá hægt að skrá sig. Endilega hafið samband við okkur (Tara, Svala, Ólöf, Emilia eða Magdalena).
Hlökkum til að sjá ykkur.
Stjórn foreldrafélagsins.
Matseðill 29. jan - 2. feb
Mánudagur
Matarmikill fiskisúpa, rugbrauð, ávextir
Þriðjudagur
Heilhveiti spaghetti, bauna- og kjötsósa, salat, ávextir
Miðvikudagur
Lambasnitsel, kartöflur, grænmeti, ávextir
Fimmtudagur
Fiskur m/osti, ofnbakaðar grænmeti, salat, ávextir
Föstudagur
Pizza, ávextir
Vetrarvindar
Í dag og á morgun, miðvikudag verður vindasamt og biðjum við foreldra því að huga að því hvort þarf að fylgja og/eða sækja nemendur í skólann eftir því hvernig aðstæðurnar hér á eyrini eru. Þetta á auðvitað sérstaklega við yngri nemendur. Skólinn er að sjálfsögðu opin. Áætlun vegna röskunar á skólastarfi vegna veðurs má finna hér.
Matseðill 22-26.janúar
Mánudagur
Kjöt- og grænmetissúpa, brauð, ávextir
Þriðjudagur
Fiskur í raspi, kartöflur, koktejlsósa, salat, ávextir
Miðvikudagur
Kjuklingabringa í rjómasósu, hrisgrjón, grænmeti, ávextir
Fimmtudagur
Pastaréttur, salat, brauð, ávextir
Föstudagur
Ofnbakaður fiskur, grænmeti, kartöflur, ávextir
VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU
Ferðalag Miðstigsins um Suðurlandið
Seinustu viku hefur Miðstigið verið að kynna sér Suðurland Íslands. Til að brjóta upp kennslu fengu þau það verkefni að útbúa 3ja daga ferð um svæðið. Þau unnu saman í þremur hópum og stóðu sig frábærlega vel og höfðu mjög gaman af. Þetta vakti mikinn áhuga hjá þeim á Íslandi og að ferðast um landið og þá sérstaklega þetta svæði sem fáir höfðu heimsótt.
Glærusýningin þeirra hefur tekið flotta mynd og eru þau byrjuð að æfa fyrirlestur. Þeim langar að bjóða foreldrum og öðrum aðstandendum í heimsókn næsta föstudag, 19. janúar, og fræða þau um Suðurlandið og segja frá öllu því sem þeim langar að gera og skoða þar. Fyrirlestrarnir verða á milli 11:30 - 12:30 og allir aðstandendur velkomnir sem komast á þeim tíma.
Fleiri myndir koma eftir fyrirlesturinn.
Kveðja
Miðstigið
Matseðill 8-12.janúar
Mánudagur
Grænmeti og kjötsúpa, brauð með osti, ávextir
Þriðjudagur
Plokkfiskur, gúrka, rugbrauð, ávextir
Miðvikudagur
Heitt slátur, kartöflumus, soðnar grænmeti, ávextir
Fimmtudagur
Kjöt í karrí, hrisgrjón, salat, ávextir
Föstudagur
Skyr og brauð með áleggi, ávextir
VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU
Gleðileg jól
Við héldum litlu jólin hátíðleg í dag. Lesnar voru sögur, spilað og nemendur skiptust á pökkum og jólakortum. Við fengum hressa jólasveina í heimsókn og sungum og dönsuðum í kring um jólatré. Myndir frá hátíðinni má skoða hér.
Starfsfólk skólans óskar nemendum, aðstandendum og bæjarbúum öllum gleðilegra hátíðar og farsældar á nýju ári. Við þökkum kærlega fyrir samstarfið á árinu og hlökkum til að vinna með ykkur á því næsta.
Við sjáumst öll hress og endurnærð 4. janúar kl 08:00
Skólablað 2017
Skólablað Grunnskólans á Suðureyri kom í dag, ennþá volgt eftir prentunina. Blaðið er 44 blaðsíður og sneisafullt af myndum og efni frá nemendum skólans.
Í kvöld og á morgun fara nemendur um bæinn og selja blöð. Ef þið missið af heimsókn, þá er um að gera að hafa samband við einhvern nemanda í eldri hóp og fá blaðið. Blaðið í ár líkt og í fyrra kostar 1.000 kr. Hægt er að staðgreiða eða leggja inn á reikning: 0174-05-420260 kt: 560686-1459.