Fréttir
Löng helgi
Matseðill 18-22.apríl
Mánudagur 18.apríl
Grjónagrautur, slátur, brauð með osti, rusinur og kanillsykur
Þriðjudagur 19.apríl
Soðinn fiskur, soðnar kartöflur og grænmeti, rugbrauð, smjörvi
Miðvikudagur 20.apríl
Grænmetisbuff, bókhveitigrjón, salat og sósa
Fimmtdagur 21.apríl
SUMARDAGURINN FYRSTI - LOKAÐ
Föstudagur 22.apríl
STARFSMANADAGUR - LOKAÐ
VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU
Samskólaball á Suðureyri
430 Fest, sem verður framvegis árlegt samskólaball Grunnskólans á Suðureyri var haldið í gær. Tæplega 100 manns mættu og skemmtu sér konunglega. Hljómsveitin Kim Jong Illaðir hélt uppi stuði allt kvöldið. Rappsveitin 400 kom einnig við og tók lag. Nemendur í eldri hóp eiga mikið hrós skilið fyrir góðan undirbúning og mikla vinnu við að koma þessu á laggirnar. Við lærðum margt og nú þegar eru komnar upp fjölmargar hugmyndir fyrir næsta ár. Við þökkum fyrirtækjum og einstaklingum kærlega fyrir góðan stuðning og nágrönnum okkar fyrir komuna og vonum að þeir hafi skemmt sér jafn vel og við. Myndir frá 430 Fest má skoða hér.
Samkeppni um merki fyrir skólann
Samkeppni um merki Grunnskólans á Suðureyri er nú hafin. Skilafrestur fyrir hugmyndir er til 6. maí á netfang skólans: grsud@isafjordur.is eða til skólastjóra. Allir sem hafa áhuga eru hvattir til að taka þátt. Nemendur, foreldrar og aðrir velunnarar grunnskólans eru sérstaklega hvattir til að taka þátt.
Dómnefnd mun síðan fara yfir tillögurnar og velja úr 3 bestu sem fá að launum harðfisk. Það fer svo fram kosning á heimasíðu skólans. Við val á tillögum verður stuðst við hversu vel tillagan tekur til eftirfarandi þátta:
Einkunnarorð skólans: Ástundun, Árangur, Ánægja
Suðureyri, Súgandafjörður, skólinn og umhverfi hans.
Sigurvegarinn hlýtur að launum veglega vinninga: Árskort í sundlaugar Ísafjarðarbæjar, hlaðborðsveislu fyrir tvo á Fisherman, skoðunarferð fyrir tvo í Vigur frá Vesturferðum, harðfisk frá Valla, innkeyrslumokstur á Suðureyri frá Gröfuþjónustu Bjarna og hamborgaratilboð í Verslunin Súgandi.
Skíðaferð í blíðviðri
Það var þreyttur og sæll hópur sem kom heim í gær af skíðasvæðinu í Tungudal. Veðrið var frábært og nemendur skemmtu sér konunglega. Eins og alltaf voru þau sér og okkur öllum til mikils sóma. Færið hefði mátt vera betra, snjórinn blautur og hraðinn eftir því. Þau létu það þó ekki á sig fá og sumir gleymdu jafnvel að fá sér nesti því fjörið var svo mikið. Við tókum að sjálfsögðu fullt af myndum og þær má sjá hér.
Lausar stöður
Lausar eru til umsóknar ein og hálf staða grunnskólakennara við Grunnskólann á Suðureyri (100% starfshlutfall og 50% starfshlutfall). Aðallega er um að ræða kennslu á mið og unglingastigi í t.d. íslensku, dönsku og upplýsingartækni.
Auk þess er laus staða Íþróttakennara (50% starfshlutfall) við afleysingar vegna fæðingarorlofs Íþróttakennari til 10. febrúar 2017.
Menntunar og hæfniskröfur:
· Kennsluréttindi í grunnskóla
· Jákvæðni, lipurð og færni í samskipum og skipulagsfærni
· Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
· Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum auk stundvísi og samviskusemi
Í dag eru nemendur í Grunnskólanum á Suðureyri um 50. Einkunnarorð skólans eru ástundun, árangur og ánægja.
Umsóknum skal skilað til Þormóðs Loga Björnssonar skólastjóra á netfangið thormodurbj@isafjordur.is. Umsóknarfrestur er til og með 25. apríl 2016. Allar nánari upplýsingar veitir Þormóður Logi í síma 450-8395 eða í gegnum tölvupóst.
Matseðill 11-15.apríl
Er að vora?
Í gær fóru nemendur í yngri hóp út í könnunarleiðangur um nágrenni skólans til að athuga hvort vorið væri komið á Suðureyri. Við skoðuðum hvort plöntur og tré væru farin að taka við sér og fundum ummerki um að sumarið er á næsta leiti. Myndir frá leiðangrinum má sjá hér.
Skíðaferð
Mánudaginn 11. apríl skellum við okkur á skíði, sleða og þotur á skíðasvæði bæjarins. Nemendur mæta í skólann kl 08:00. Brottför er kl 08:30 og áætluð heimkoma 12:25. Mikilvægt er að allir séu klæddir eftir veðri, tilbúnir í útiveru, með gott nesti og eitthvað að drekka. Það verður heit kakó og mjólk í boði skólans. Þeir sem kunna á skíði og vilja leigja sér búnað þurfa að hafa með sér pening (1.500 kr.) til þess.